Jakki: 39.000 kr
Buxur: 17.000 kr
Vesti: 14.000 kr
Smoking er kvöldklæðnaður sem hefur víðtækt notkunargildi. Nú til dags er hann þó notaður við ýmis tækifæri, eins og t.d. brúðkaup.
Allir herramenn ættu að eiga einn slíkan.
Smokingfatnaður er nánast eins og hefðbundinn jakkaföt að því undanskildu að jakkinn er alltaf með silkihorn (satin) eða silkisjalkraga og á buxum er einfaldur satinborði.
JAKKINN
Mjög margar útgáfur eru til af smoking en sú algengasta er einhnepptur jakki á eina tölu (smokinghneppsla), ýmist með sjalkraga eða tvíhneppuhorni (spísshorni). Einnig eru þess fordæmi að smoking sé með hefðbundum hornum. En mismunandi tíska er í þessu eins og öðrum fatnaði.
BUXURNAR
Buxurna eru alltaf í sama lit og jakkin, nema við hvítan jakka eru svartar buxur. Á hliðarsaum er einfaldur satínborði. Ekki ætti að nota belti, en axlarbönd eru oft notuð við smokingbuxur.
SKYRTAN
Nota þarf sérstaka smokingskyrtu, sem er stundum með skreyttu brjóststykki eða bísalögum (þ.e. litlum fellingum). Stundum er blindhnepping á skyrtunni, þá sést ekki í tölurnar, annars þarf að nota litla skrauthnappa. Skyrtan á einnig að vera með tvöfaldar mansíettur (ermalíningar) fyrir skyrtuhnappa. Ýmist er hafður venjulegur skyrtukragi eða flibbakragi og fer það eftir smekk viðkomandi hvort hann kýs.
Þú getur keypt smóking skyrtu í skyrtuhlutanum á síðuni.
Aukahlutir eru ekki innifaldir í verði,
Svo sem: ermahnappar, slaufa eða bindi
Skyrtur pantaðar sér.